top of page
Um Ljósleiðara Borgarbyggðar

Ljósleiðari Borgarbyggðar er fyrirtæki í eigu sveitarfélagsins Borgarbyggðar sem annast lagningu ljósleiðara í dreifbýli sveitarfélagsins . Félagið er rekið sem deild innan sveitarfélagsins og því alfarið á ábyrgð þess og hefur sveitarstjórn yfirumsjón með því.
 

Ljósleiðarakerfið er alfarið í eigu sveitarfélagsins.
 

Inntak hinnar opinberu þjónustu sem félaginu er ætlað að framkvæma og veita er að tengja öll heimili, fyrirtæki og sumarhús í sveitarfélaginu, sem svo kjósa og eru ekki þegar tengd, við ljósleiðaranet (FTTH, e. Fiber To The Home) og mun gera öllum íbúum sveitarfélagsins mögulegt að hafa aðgang að háhraða ljósleiðaratengingu. Verkefnið tekur til þess svæðis innan sveitarfélagsins þar sem ljósleiðari hefur ekki þegar verið lagður og ekki eru uppi áform um slíkt.

bottom of page