top of page
Samningur við Ísland ljóstengt 2018 undirritaður

Þann 23. mars 2018 skrifuðu fulltrúar fjarskiptasjóðs og sveitarfélaga undir 24 samninga um styrki fjarskiptasjóðs vegna ljósleiðaravæðingar sveitarfélaga í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, staðfesti samningana með undirskrift sinni og fór athöfnin fram í ráðuneytinu.

Sveitarfélögin 24 fá samtals 450 milljónir króna í styrki, á bilinu 2 til 74 milljónir króna hvert. Auk styrkja frá fjarskiptasjóði þá leggja íbúar og sveitarfélög að lágmarki 350.000 kr. af mörkum vegna hverrar tengingar en í mörgum tilfellum er þörf á töluvert hærra framlagi heimamanna. Í þeim tilfellum að sveitarfélag ætlar ekki að eiga og reka eigið kerfi greiða fjarskiptafyrirtæki fyrir það að eignast slík kerfi eða reka fyrir hönd sveitarfélagsins.


Ráðherra skrifaði jafnframt undir samtals100 milljón króna samninga við 15 sveitarfélög um sérstaka byggðastyrki á bilinu ein  til 15 milljónir króna í tengslum við Ísland ljóstengt.

Í hlut Borgarbyggðar féllu rúmar 48 milljónir, þar af um 15 milljónir í byggðastyrk

bottom of page