top of page
  • Forfatters billedeGDan

Áfangi 14 er tilbúinn

Vinnu við að tengja notendur í áfanga 14 er lokið. Fjarskiptafélögin hafa móttekið lista yfir þau heimili sem tilheyra áfanganum ásamt niðurstöðum mælinga. Þar með er ekkert því til fyrirstöðu fyrir íbúa og eigendur sumarhúsa sem tilheyra áfanga 14 að panta sér fjarskiptaþjónustu.

Til upprifjunar þá afmarkast áfangi 14 af Jarðlangsstöðum í vestur, Einarsnesi í suður, Ferjukoti í austur og Galtarholti í norður. Minni einnig á að það getur tekið fjarskiptafélögin tíma að skrá alla notendur inn í sín kerfi og rétt að vopna sig með þolinmæði í fáeina daga ef að svarið sem þið fáið er að "þetta sé ekki tilbúið" frá þeim.


Rétt er að minna á mikilvægi þess að hafa LL númerið sem prentað er á inntaksboxið ykkar við höndina þegar pöntuð er fjarskiptaþjónusta. Þetta er einkenni ykkar tengingar og tryggir að sú þjónusta sem þið kaupið rati örugglega heim til ykkar. Númerið er á þessu formi: LLxxx.Txx.xx. Gæti til dæmis verið LL114.T17.01.



178 visninger0 kommentarer

Seneste blogindlæg

Se alle
bottom of page