Fjarskiptafélögin hafa móttekið lista yfir þau heimili sem tilheyra áfanga 12 ásamt niðurstöðu mælinga. Þar með er ekkert því til fyrirstöðu fyrir íbúa og eigendur sumarhúsa sem tilheyra áfanga 12 að panta sér fjarskiptaþjónustu.
Til þess að flýta fyrir pöntunarferlinu er mjög gott að hafa LL númerið sem prentað er á inntaksboxið ykkar við höndina þegar pöntuð er fjarskiptaþjónusta. Þetta er einkenni ykkar tengingar og tryggir að sú þjónusta sem þið kaupið rati örugglega heim til ykkar. Númerið er á þessu formi: LLxxx.Txx.xx. Gæti til dæmis verið LL112.T10.01.
Comments